Var lofað plássi en nú vantar deildarstjóra

Ekki hefur gengið að ráða deildarstjóra og því hefur ekki …
Ekki hefur gengið að ráða deildarstjóra og því hefur ekki verið hægt að staðfesta hvenær börn fá inngöngu. Ljósmynd/Vefur Reykjavíkurborgar

Óvíst er hvenær ný leik­skóla­börn fá inn­göngu í leik­skól­ann Sæ­borg í Vest­ur­bæ sök­um þess að ekki hef­ur tek­ist að ráða deild­ar­stjóra.

Búið var að lofa for­eldr­um plássi en sök­um þess að fáar sem eng­ar um­sókn­ir hafa borist um stöðuna, sem aug­lýst hef­ur verið mánuðum sam­an, hafa for­eldr­ar í kjöl­farið fengið til­kynn­ingu um að óvíst sé hvenær hægt verður að standa við gef­in lof­orð um leik­skóla­pláss. 

Löngu búin með fæðing­ar­or­lofið 

For­eldri sem hafði sam­band við mbl.is var mikið niðri fyr­ir vegna vend­ing­anna. Hann vildi ekki láta nafn síns getið „svo það hafi ekki áhrif á um­sókn­ina“ að sögn hans. Hann seg­ir að for­eldr­ana hafa skipu­lagt haustið með það fyr­ir sjón­um að geta hafið vinnu að fullu og því sé það mikið fjár­hags­legt högg ef ekki verður hægt að koma barn­inu á leik­skóla. 

„Við erum fyr­ir löngu búin með okk­ar rétt til fæðing­ar­or­lofs og höf­um reitt okk­ur á for­eldra í og með til að brúa bilið, taka sum­ar­frí og launa­laus leyfi stöku daga. For­eldr­ar mín­ir eru líka í vinnu og því verður þetta erfitt fyr­ir okk­ur í haust,“ seg­ir for­eldrið.

Fáar sem eng­ar um­sókn­ir 

Haf­dís Svans­dótt­ir, leik­skóla­stjóri á Sæ­borg, seg­ir að aug­lýst hafi verið eft­ir nýj­um deild­ar­stjóra í nokkra mánuði. 

„Það er rétt að ekki er hægt að gefa öll­um börn­um dag­setn­ing­ar [um inn­göngu] því það vant­ar deild­ar­stjóra,“ seg­ir Haf­dís. 

Hún seg­ir að aug­lýst hafi verið í nokkra mánuði. 

„Við get­um ekki tekið barn inn á deild­ina ef það vant­ar deild­ar­stjóra,“ seg­ir Haf­dís. 

Að sögn henn­ar hafa um­sókn­ir verið fáar sem eng­ar.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert