Nýr Tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði

Frá undirrituninni fyrr í dag. Frá vinstri: Egill Jónsson, formaður …
Frá undirrituninni fyrr í dag. Frá vinstri: Egill Jónsson, formaður stjórnar Tækniskólans, Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans, Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nýr Tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði. Stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis í dag. Næstu skref eru undirbúningur hönnunar og framkvæmdar með áætluð verklok haustið 2029.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu.  

Fram kemur, að Tækniskólinn sé einn af burðarásum iðn-, starfs- og tæknináms á höfuðborgarsvæðinu. Húsnæði hans sé komið til ára sinna en núna fari starfsemi skólans fram í átta byggingum á fimm stöðum á höfuðborgarsvæðinu.

Rúmar 3.000 nemendur

„Bygging nýs Tækniskóla markar umbyltingu í aðstöðu til iðn-, starfs- og tæknináms á höfuðborgarsvæðinu og er liður í aðgerðum stjórnvalda til að auka veg þess á Íslandi. Markmiðið er að efla námið og aðstöðu, koma allri starfseminni fyrir á einum stað, bregðast við aukinni eftirspurn eftir náminu og mæta þörfum atvinnulífsins.“

Þá kemur fram, að fyrirhuguð sé 30.000 fermetra bygging sem rúmi um 3.000 nemendur á gróskumiklu hafnarsvæði í námunda við fjölbreytta atvinnustarfsemi.

Tækniskólinn.
Tækniskólinn.

Kostar um 27 milljarða króna

Framkvæmdin verður í tveimur áföngum, í fyrri áfanga er byggð um 24.000 fermetra bygging og í seinni áfanga um 6.000 fermetra viðbót. Þá er gert ráð fyrir frekari stækkunarmöguleikum á lóðinni í framtíðinni, að því er ráðuneytið greinir frá. 

„Áætlaður heildarkostnaður er 27 ma.kr. (á verðlagi í janúar 2023 samkvæmt áætlun verkefnisstjórnar). Bygging og búnaður verður í eigu ríkisins (80%), Hafnarfjarðarbæjar (16%) og hlutahafa Tækniskólans (4%) við lok uppgreiðslu lána,“ segir enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert