Rabarbarasíróp, rabarbarapæ og rabarbarasulta með hummus voru vinningsréttirnir í uppskriftarkeppni Rabarbarahátíðarinnar á Blönduósi.
Rabarbarahátíðin var í dag haldin í fyrsta sinn en svo sannarlega ekki það síðasta að sögn Elfu Þallar Grétarsdóttur, skipuleggjanda hátíðarinnar. Rabarbari, eða tröllasúra, var nýttur í hinar ýmsu uppskriftir í uppskriftarkeppninni.
15 sendu inn sína rabarbararétti og var keppt í þremur flokkum. Rabarbararéttir framreiddir í krukku, á diski og svo var flokkur sem var einfaldlega kallaður „annað“.
Sigurvegarinn í krukkuflokknum var Angela Berthold sem bauð upp á rabarbarasultu með hummus.
Elísabet Jónsdóttir bar sigur úr bítum í diskaflokknum en hún bauð upp á gómsæta Rabarbarapæ.
Margrét Einarsdóttir vann svo flokkinn „annað“ með dásamlegu rabarbarasírópi.
Þá voru aðrir réttir í keppninni eins og sultur, lummur og chutney.
Hátíðin fór að miklu leyti fram í Krúttinu, gömlu brauðgerðinni í bænum en húsið var gert upp fyrir allskyns viðburðahald.
Í morgun var svokölluð hjólagleði þar sem fulltrúar frá Erninum buðu upp á hjólastillingar og fólk hjólaði svo saman í kringum Svínavatn.