Fjórir á sjúkrahús eftir bílveltu

Fjórir voru fluttir á sjúkrahús með minniháttar áverka.
Fjórir voru fluttir á sjúkrahús með minniháttar áverka. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjórir voru fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu í Borgarfirði.

Þetta staðfestir varðstjóri hjá Neyðarlínunni í samtali við mbl.is.

Varðstjórinn segir að áverkar á fólkinu hafi verið minniháttar en bílveltan varð á Borgarfjarðarbraut.

Útkallið barst lögreglu klukkan rúmlega hálf fjögur í dag.

Fyrr í dag valt hjólhýsi í Borgarfirði, en það er ótengt þessari veltu samkvæmt upplýsingum frá Neyðarlínunni. Enginn slasaðist í þeirri veltu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert