Samfylkingin tapar þremur prósentustigum á milli mánaða samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup. Vinstri græn næðu ekki manni inn á þing og Framsókn mælist með undir 7% fylgi.
Þetta kom fram í útvarpsfréttum Ríkisútvarpsins klukkan 18.
Samfylkingin mælist með 26,9% % fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 18,5% fylgi. Framsókn mælist aðeins með 6,6% fylgi en mældist með um 9% fylgi fyrir mánuði síðan.
Miðflokkurinn bætir við sig einu prósentustigi á milli mánaða og er nú með 14,5% stuðning.
Viðreisn mælist með 9,4% fylgi og Flokkur fólksins 7,7% fylgi. Vinstri græn mælast með 4% fylgi og næðu ekki manni inn á þing, eins og í síðasta þjóðarpúlsi.
Píratar mælast með 8,8% fylgi og Sósíalistar með 3,5% fylgi.
28% svarenda sögðust styðja ríkisstjórnina.