Hýsa nú töluvert færri umsækjendur um vernd

Umsækjendum um alþjóðlega vernd sem eru í búsetuúrræðum á vegum Vinnumálastofnunar hefur fækkað um ríflega 340 á síðustu þremur mánuðum. 

Þetta kemur fram í svari Vinnumálastofnunar við fyrirspurn Morgunblaðsins.

Alls voru 1.893 umsækjendur um alþjóðlega vernd í búsetuúrræðum á vegum stofnunarinnar í fyrri hluta apríl en þeir eru nú 1.549 og hefur því fækkað um 344. Samsvarar það um 18% fækkun. 

Þegar Morgunblaðið lagði fram fyrirspurn um málið í byrjun apríl voru um 1.050 umsækjendur í eigin húsnæði eða hjá vinum og vandamönnum. Af þeim voru hér um bil 100 í úrræðum á vegum ríkislögreglustjóra vegna fyrirhugaðrar brottfarar.

Fækkað um nærri helming

Nú búa hins vegar um 516 umsækjendur í eigin húsnæði eða hjá vinum og vandamönnum og hefur því fækkað um nærri helming síðan í byrjun apríl. Af þeim eru hér um bil 35 í úrræðum á vegum ríkislögreglustjóra vegna fyrirhugaðrar brottfarar, eða um þrefalt færri en í byrjun apríl.

Þær upplýsingar fengust hjá Vinnumálastofnun að helsta ástæðan fyrir fækkun umsækjenda um alþjóðlega vernd væru færri umsóknir frá Venesúela.

Þá hefðu brottflutningur og sjálfviljug heimför umsækjenda einnig áhrif á tölurnar.

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag, þriðjudag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert