Norðmaður nældi sér í annan vinning í Víkingalottóinu sem veitir honum rúmar 19,3 milljónir króna. Enginn tók fyrsta vinning í útdrætti kvöldsins.
Heppinn einstaklingur sem keypti miða í Lottó-appinu hlaut hinn al-íslenska þriðja vinning sem færði honum rúmar 1,8 milljónir króna.
Jókerinn var ekki dreginn að þessu sinni en fjórir miðaeigendur unnu annan vinning og fá 100 þúsund krónur hver.
Einn miðinn var keyptur á Olís á Selfossi, tveir miðar í Lottó-appinu og fjórði miðinn er í áskrift.