Sportbíll af gerðinni DMC DeLorean hefur vakið mikla athygli á götum Reykjavíkur í vikunni. Sem kunnugt er lék samskonar bíll stórt hlutverk í kvikmyndinni Back to the Future á níunda áratug síðustu aldar en þar var hann notaður til tímaferðalaga. Umræddur bíll hefur einmitt verið sérútbúinn þannig að hann lítur nákvæmlega eins út og bíllinn sem Marty McFly og félagar notuðust við í myndinni. Öll stjórntæki og búnaður eru nákvæm eftirmynd og þau virka alveg eins og í myndinni – nema að þessi bíll hefur ekki enn ferðast um í tíma.
Þetta er annar DMC DeLorean-bíllinn sem kemur hingað til lands en sá fyrsti með umræddum búnaði. Mbl.is náði tali af eiganda bílsins og sagði hann afar ánægjulegt að sjá hversu mikla gleði það veitti fólki að berja gripinn augum. Hann baðst að öðru leyti undan viðtali og vildi ekki að nafn hans kæmi fram.
Saga DMC DeLorean-bílanna hefur löngum þótt forvitnileg. Aðeins voru framleidd 8.900 eintök af þessum sérstaka bíl á árunum 1981-1982. Í umfjöllun í Morgunblaðinu fyrir rúmum áratug kom fram að bíllinn þykir mjög sérstakur í útliti, sannkallaður sportbíll með vængjahurðir og aðeins 114 cm á hæð. Hann var smíðaður úr ryðfríu stáli og trefjaplasti og getur því ekki ryðgað.