Reykjavíkurborg óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu fyrir næsta vetur. Verkið felst í hálkueyðingu og snjóhreinsun gatna í Reykjavík.
Í tilkynningu á vef borgarinnar kemur fram að umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur óski eftir tilboðum í vetrarþjónustu gatna og húsagatna næsta vetur 2024-2025.
Útboðin bjóða upp á að fyrirtæki og einyrkjar sem eiga vinnuvélar er henta í vetrarþjónustu geti tekið þátt í útboðunum.
Þá er kynningarfundur haldinn á Fiskislóð 37c á fimmtudaginn, 11. júlí, kl. 10.
Að þessu sinni verða útboðin tvö, annars vegar fyrir stofnbrautir og hins vegar fyrir húsagötur, sem minni aðilar og einyrkjar er hafa tæki til umráða geta tekið þátt í.