„Það lítur út fyrir að allir og ömmur þeirra séu að fara mæta,“ segir Sigurgeir Skafti Flosason, framkvæmdastjóri Allt í blóma, í samtali við mbl.is, en hátíðin fer fram í fjórða skiptið um helgina.
Hann segir að mikill fjöldi sé þegar kominn á staðinn en formleg dagskrá hefst í kvöld með pöbbkvissi á Skyrgerðinni og trúbador.
Á morgun, laugardag, hefst dagurinn á barnadagskrá og endar svo á stórtónleikum um kvöldið þar sem söngvarar á borð við Birgittu Haukdal, Stefán Hilmarsson, Siggu Beinteins og Pálma Gunnarsson stíga á stokk. Í kjölfarið færist fjörið yfir í tjaldið þar sem Sverrir Bergmann og Unnur Birna halda skemmtanahöldunum áfram.
Sigurgeir segir veðurspá helgarinnar vera góða en spáð er 16 til 18 gráða hita á svæðinu. Þá segir hann að tjaldsvæðið í Hveragerði sé orðið fullt og lítið sé eftir af öðrum gistiplássum á svæðinu.
„Tjaldvæðið er fullt, gróðurhúsið er fullt og ég held það séu kannski tvö herbergi laus á Hótel Örk,“ segir Sigurgeir að lokum.
Dagskrána má sjá í heild sinni á Facebook-síðu hátíðarinnar.