Göngumaðurinn sem viðbragðsaðilar leita nú að á Skálafellsjökli gekk líklegast að Miðfellsegg. Maðurinn starfar í ferðaþjónustu á svæðinu.
Eins og fram hefur komið í umfjöllun mbl.is stendur leit yfir að göngumanni á Skálafellsjökli í Vatnajökli.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var ræst út auk björgunarfélags Hornafjarðar. Í henni eru tveir björgunarmenn frá höfuðborgarsvæðinu.
Finnur Smári Torfason, formaður Björgunarfélags Hornafjarðar, segir í samtali við mbl.is að tveir möguleikar komi hvað helst til greina.
„Annar er líklegri en hinn. Það er upp frá Kálfafellsstað og upp að Miðfellsegg,“ segir Finnur, sem var einmitt á göngu að Miðfellsegg þegar blaðamaður sló á þráðinn hjá honum.
„Eða þá að hann hafi farið, sem við teljum ekki eins líklegt, inn í það sem kallast Nautastígur.“
Maðurinn er talinn vera einn á ferð. Finnur segir að göngumaðurinn starfi í ferðaþjónustu á svæðinu.
Aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi sagði við mbl.is fyrr í dag að útkallið hefði borist um kl. 7 í morgun.