Göngumaðurinn sem viðbragðsaðilar hafa leitað að í dag fannst á fjórða tímanum í Suðursveit.
Þetta staðfestir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.
Ekki fengust upplýsingar um ástand mannsins.
Útkallið barst um kl. 7 í morgun.
Eins og fram hefur komið í umfjöllun mbl.is þá var leitað að honum á Skálafellsjökli í Vatnajökli.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var ræst út auk björgunarfélags Hornafjarðar. Í henni voru tveir björgunarmenn frá höfuðborgarsvæðinu.