Helvítis ehf. hefur innkallað kryddsultuna Beikon og Brennivín og varar fólk með óþol eða ofnæmi fyrir fisk eða glúteni við að neyta vörunnar.
Í tilkynningu vegna innköllunarinnar kemur fram að hún sé gerð í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness vegna vanmerktra ofnæmis- og óþolsvalda.
Fram kemur að vegna mistaka hafi kryddsultan ekki verið merkt með innhaldslýsingu tveggja blandaðra innihaldsefna. Þau efni séu Worcestershiresósa, sem inniheldur fisk, og sojasósa, sem inniheldur hveiti og þar af leiðandi glúten.
Er tekið fram að varan sé fullkomlega örugg til neyslu þeirra sem þola fisk og glúten.
Innköllunin varðar eftirfarandi framleiðslulotu kryddsultunnar:
Vöruheiti: Helvítis Beikon og brennivín kryddsultan
Framleiðandi: Helvítis ehf.
Best fyrir: 09.04.25 og 10.04.25
Strikanúmer: 5694110087980
Dreifing: Krónan, Melabúðin, Kjötkompaní, Kaupfélag Skagfirðinga, Taste of Iceland, Sælkerabúðin og Kjöthúsið.