„Það sem hefur komið mér á óvart, er svolítið hvað þetta kemur fólki á óvart,“ segir Þórarinn Hjartarson, þáttstjórnandi Einnar pælingar, í Dagmálum um viðbrögð fólks við frammistöðu Bandaríkjaforseta í kappræðum.
Joe Biden Bandaríkjaforseti og Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, mættust í kappræðum í síðustu viku sem hafa vakið mikla athygli vegna frammistöðu Bidens.
Þórarinn segir að kosningateymi Bidens hafi kallað eftir kappræðunum meðal annars til þess að slá á áhyggjur um heilsu forsetans.
„Við sjáum núna að þetta hefur haft þveröfug áhrif,“ segir hann.
Þá hefur einnig komið fram að kappræðurnar hafi verið haldnar snemma vegna þess hversu margir kjósa utan kjörfundar og vegna bágrar stöðu Bidens í könnunum.
Þórarinn ræðir í nýjasta þætti Dagmála um komandi forsetakosningar í Bandaríkjunum. Meðal annars var rætt við hann um það hvort að Joe Biden Bandaríkjaforseti verði frambjóðandi Demókrataflokksins, hvaða málefni séu mikilvægust kjósendum og þá hvort að tengsl séu á milli stjórnmálaástandsins í Evrópu og Bandaríkjunum.
Áskrifendur Morgunblaðsins geta nálgast þáttinn í heild sinni með að smella á hlekkinn hér.