Agnar Már Másson
Sjálfti 3,4 að stærð varð fyrir skömmu á Reykjaneshrygg, nánar tiltekið um 90 km suðvestur af Reykjanestá.
Skjálftinn mældist kl. 12.20. Náttúruvársérfræðingur segir að skjálftar af þessari stærð séu algengir á þessum slóðum.
„Við fáum nú oft svona skjálfta úti á Reykjaneshrygg,“ segir Salóme Jórunn Bernharðsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.
Hún segir að síðasti skjálfti yfir 3 að stærð hafi mælst þann 16. maí. Sá var af stærðinni 3,5.
„Þetta hefur engin tengsl við jarðhræringar við Grindavík,“ svarar Salóme aðspurð.
Þá segir hún heldur engin tengsl vera milli þessa skjálfta og skjálftans sem mældist upp á 3,1 við Lambafell í morgun.