Ökumaður bifreiðar ók yfir umferðareyju og keyrði niður umferðarskilti í leiðinni er hann keyrði Ánanaust í Reykjavík fyrr í kvöld.
Að sögn sjónvarvottar laskaðist umferðareyjan verulega en á myndskeiðinu má sjá að bifreiðin tókst á loft er hún ók á umferðareyjuna.
Hann gat ekki sagt til um hvernig ástand bifreiðarinnar hafi verið eftir áreksturinn.
Umferðareyjan varð fyrir miklu tjóni eftir að ökumaðurinn keyrði yfir hana eins og má sjá á myndunum.