Tveir aðilar voru vistaðir í fangaklefa í nótt þar sem þeir voru ofurölvi, báðir sofandi á gangstétt í miðborginni.
Til að tryggja öryggi mannanna voru þeir handteknir og fluttir á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem þeir fá að sofa úr sér í fangaklefa.
Þetta er meðal annars þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en lögreglan sinnti 84 málum frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í nótt.
Tveir aðilar voru handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt en þeir voru ölvaðir að valda óspektum. Annar þeirra gekk niður miðbæinn með flösku í hönd og barði í glugga, sparkaði í ruslatunnur og var með almenn leiðindi.
Þá var tilkynnt um nakinn einstakling að veitast að bifreiðum á stöð 4 sem sinnir Grafarvogi, Árbæ og Mosfellsbæ. Lögreglan fór á vettvang. Aðilinn var augljóslega undir áhrifum og var vistaður í fangaklefa.