Rýma fyrir nýjum leikskóla

Gámur fjarlægður af svæðinu þar sem nýr leikskóli mun rísa …
Gámur fjarlægður af svæðinu þar sem nýr leikskóli mun rísa á Seltjarnarnesi. Ljósmynd/Aðsend

Gámar voru fjarlægðir af lóð Leikskóla Seltjarnarness í dag. „Við erum að rýma svæðið fyrir nýjum leikskóla,“ segir Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, í samtali við mbl.is

Þór segir að gámarnir hafi aðeins átt að vera tímabundin lausn þar til hægt yrði að hefja byggingu nýs leikskóla. Bærinn hafi hætt að leigja gámana um áramótin og þeir hafi staðið tómir síðan þá.

„Þarna mun rísa nýr leikskóli, það hefur alltaf legið fyrir og von bráðar verður tekin skóflustunga að nýjum leikskóla,“ segir Þór.

Unnið að því að fjarlægja gáma þar sem nýr leikskóli …
Unnið að því að fjarlægja gáma þar sem nýr leikskóli á að rísa á Seltjarnarnesi. Ljósmynd/Aðsend
Unnið að því að rýma svæðið fyrir nýjum leikskóla á …
Unnið að því að rýma svæðið fyrir nýjum leikskóla á Seltjarnarnesi. Ljósmynd/Aðsend
Gámur fjarlægður af svæðinu.
Gámur fjarlægður af svæðinu. Ljósmynd/Aðsend
Gámur hífður upp.
Gámur hífður upp. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka