Covid-tilboð á hótelum um allt land

Ferðamenn við Goðafoss
Ferðamenn við Goðafoss mbl.is/Kristinn Magnússon

„Það hef­ur verið meira um af­bók­an­ir en oft áður og meira er laust en fólk átti von á. Því eru ýms­ir farn­ir að bregðast og reyna að ná inn bók­un­um með skömm­um fyr­ir­vara. Það eru eðli­leg viðbrögð,“ seg­ir Jó­hann­es Þór Skúla­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka ferðaþjón­ust­unn­ar.

Stór­ar hót­elkeðjur á Íslandi kepp­ast nú við að bjóða Íslend­ing­um til­boðsverð á gist­ingu og veit­ing­um. Ljóst er að spár um fjölda er­lendra ferðamanna hafa ekki ræst og enn kvarn­ast úr bók­un­um þeirra. Eins og kom fram í Morg­un­blaðinu í gær virðast ferðamenn hafa hætt við eða frestað ferðum hingað þegar mikið var af frétt­um um elds­um­brot­in á Reykja­nesskaga í vet­ur. Þá stoppa nú færri í Reykja­vík en oft áður.

Jó­hann­es Þór seg­ir að nýj­ar töl­ur frá Hag­stofu Íslands um gist­inæt­ur sýni svart á hvítu hvernig ástandið er. Í maí voru gist­inæt­ur 15% færri en á sama tíma í fyrra og ef aðeins er horft til er­lendra ferðamanna nam sam­drátt­ur­inn 18%. „Þetta er búið að vera svona í ár. Það eru færri gist­inæt­ur á hvern er­lend­an ferðamann,“ seg­ir Jó­hann­es.

Viðbrögð hót­el­hald­ara nú minna óneit­an­lega á covid-sum­arið 2020 þegar hér voru eng­ir ferðamenn og heima­menn voru eini kúnna­hóp­ur­inn. Hót­elkeðjur bjóða allt að 30% af­slátt af gist­ingu auk þess sem gest­ir á sum­um hót­el­um fá ókeyp­is drykk við kom­una eða aðgang að morg­un­verðar­hlaðborði. Þá er einnig í boði að kaupa fimm eða átta næt­ur á lægra verði en ella. 

Lesa má meira um málið í Morg­un­blaðinu í dag. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert