Þau átján sem voru í ákærð í máli er varðar innflutning, vörslu, sölu og dreifingu fíkniefna eru öll með íslenskan ríkisborgararétt. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara, í samtali við mbl.is.
Talið er að þau hafi komið að skipulagðri brotastarfsemi glæpahóps en ákæra var gefin út á föstudaginn. Meðal hinna ákærðu er meintur höfuðpaur hópsins.
„Þetta er í raun og veru öll flóran,“ segir Karl spurður um brot sakborninganna.
Telur hann upp geymslu fíkniefna, innflutning á efnum og „allt þar á milli“. Nefnir hann þá dreifingu og sölu fíkniefna til útskýringar og bætir við að málið varði líka peningaþvætti og vopnalagabrot.
Flestir sakborningarnir voru handteknir vegna innflutnings fíkniefna til landsins með skemmtiferðaskipi. Spurður hvaðan efnin voru flutt kveðst Karl ekki ætla að tjá sig um það að svo stöddu.
Þá segist hann ekki heldur ætla að upplýsa um hvort umfangsmikil rannsókn lögreglu á málinu hafi leitt af sér aðrar sambærilegar rannsóknir sem varða stórfelld fíkniefnalagabrot.
Fjöldi ákærðra í málinu er nokkuð einstakur en sjaldan eru svo margir ákærðir í einu lagi.
Sakborningar í hinu svokallaða Bankastræti Club máli voru 25 talsins en réttarhöld í því máli þurfti þess vegna að færa í veislusalinn Gullhamra í Grafarholti.
Spurður hvort hann eigi von á svipuðu umfangi á réttarhöldum svarar Karl: „Það fer bara eftir því hvernig eða hvaða afstöðu sakborningarnir hafa til sakarefnisins.“
Upplýsir hann ekki um afstöðu sakborninganna en segir: „Það er nú þannig, svona heilt yfir, að þá neita menn sök eða kjósa að tjá sig ekki um sakarefnið.“