Krefst þess að varðhaldið verði framlengt

Gæsluvarðhald yfir Pétri Jökli Jónassyni rennur út í dag.
Gæsluvarðhald yfir Pétri Jökli Jónassyni rennur út í dag. Samsett mynd

Héraðssak­sókn­ari legg­ur fram kröfu um áfram­hald­andi gæslu­v­arðhald yfir Pétri Jökli Jónas­syni vegna stóra kókaín­máls­ins svo­kallaða.

Þetta staðfest­ir Dag­mar Ösp Vé­steins­dótt­ir, sak­sókn­ari hjá héraðssak­sókn­ara, í sam­tali við mbl.is og bæt­ir við að aðalmeðferð í mál­inu fari fram 12. til 14. ág­úst.

Varðhald hefði runnið út í dag

Pét­ur er ákærður fyr­ir til­raun til stór­fellds fíkni­efna­laga­brots og var úr­sk­urðaður í gæslu­v­arðhald 18. júní. Varðhaldið renn­ur út í dag en að sögn Dag­mars verður gerð krafa um fram­leng­ingu.

Pétri er gefið að sök að hafa staðið að inn­flutn­ingi á 99,25 kg af kókaíni hingað til lands frá Bras­il­íu með viðkomu í Hollandi.

Mál­inu vísað frá dómi

Þrír hafa nú þegar verið dæmd­ir fyr­ir sinn þátt í mál­inu en Pét­ur var hand­tek­inn í fe­brú­ar við komu til Íslands. Hafði hann þá verið eft­ir­lýst­ur hjá In­terpol í tengsl­um við málið.

Héraðsdóm­ur vísaði máli héraðssak­sókn­ara gegn Pétri frá dómi í júní vegna hve óskýr­lega gert var grein fyr­ir aðkomu hans að mál­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert