Einn heppinn miðahafi hlaut þriðja vinning í Víkingalottói kvöldsins og fær hann 1,7 milljónir króna. Miðinn var keyptur á vef lottós.
Hvorki fyrsti né annar vinningur gengu út í þetta skipti.
Enginn var með allar tölur réttar í Jókernum en fimm voru með annan vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur. Miðarnir voru keyptir í Krambúðinni við Hringbraut í Reykjanesbæ, Krambúðinni við Tjarnarbraut í Innri Njarðvík, í lottó-appinu, á vef lottós og einn var í áskrift.