Ekkert um alvarleg veikindi

Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir eðlilegt að spítalinn grípi til aðgerða …
Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir eðlilegt að spítalinn grípi til aðgerða til að vernda sjúklinga og starfsmenn. Samsett mynd/Árni Sæberg/Eggert Jóhannesson

Um 70 manns hafa greinst með ómíkrónafbrigði kór­ónu­veirunn­ar á síðustu vik­um en til þessa hef­ur eng­inn hinna sýktu veikst al­var­lega.

„Það sem skipt­ir mestu máli, þar sem kór­ónu­veir­an er búin að vera í nokk­ur ár og er hvergi að fara, er að það sé ekki um al­var­leg veik­indi að ræða í sam­fé­lag­inu, eins og hef­ur komið fram hjá Land­spít­al­an­um,“ seg­ir Guðrún Asp­e­lund sótt­varna­lækn­ir í sam­tali við Morg­un­blaðið.

32 sjúk­ling­ar í ein­angr­un

Ákveðið var að taka upp smit­varn­araðgerðir á Land­spít­al­an­um á þriðju­dag eft­ir að smit greind­ust á átta deild­um og 32 sjúk­ling­ar voru komn­ir í ein­angr­un.

Greind smit á spít­al­an­um höfðu ekki verið fleiri frá því í árs­byrj­un 2023. Til að koma í veg fyr­ir aukna út­breiðslu hef­ur grímu­skylda verið tek­in upp á ný og heim­sókn­ar­tími stytt­ur.

Ekki ástæða til að grípa til aðgerða í sam­fé­lag­inu

Guðrún seg­ir eðli­legt að spít­al­inn grípi til slíkra aðgerða til að vernda sjúk­linga og starfs­menn en að ástandið sé þó alls ekki þannig að grípa þurfi til aðgerða í sam­fé­lag­inu.

„Bólu­setn­ing­arn­ar virðast halda nokkuð vel í sam­fé­lag­inu þannig að við erum ekki að sjá þessi al­var­legu veik­indi sem voru áður þrátt fyr­ir að fleiri smit grein­ist nú. Eins og er höf­um við enga ástæðu til að grípa til aðgerða og er ekk­ert í kort­un­um sem bend­ir til þess.“

Ítar­legt viðtal við Guðrúnu má lesa í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert