Tæplega 1.200 keppendur eru skráðir til leiks í alþjóðlegu hjólakeppninni The Rift sem hefst á Hvolsvelli á laugardaginn. Hjólað er upp á Fjallabak og í kringum Heklu á þeirri 200 kílómetra leið sem keppendur munu fara um. Mikill meirihluti keppenda kemur erlendis frá og hefur um helmingur þeirra tekið þátt áður. Nýjungar verða í kvennaflokkinum í ár og miðað við veðurspá virðast veðurguðir ætla að vera í liði með hjólreiðafólkinu.
Skipuleggjendur keppninnar segjast leggja sérstaka áherslu í ár að gera svæðið í kringum endamarkið sem skemmtilegast, fyrir keppendur, fjölskyldur þeirra og aðra áhorfendur. Hvetja þeir áhugasamt hjólreiðafólk til að fjölmenna eftir hádegi á laugardaginn á Hvolsvöll til að taka þátt í hjólreiðaveislunni og skapa skemmtilega stemningu.
Þetta er í fimmta skipti sem keppnin fer fram, en hún laðar til landsins um 3.000 erlenda gesti ár hvert þar sem mjög algengt er að keppendur komi hingað með fjölskyldum og staldri við hér á landi í einhvern tíma fyrir og eftir keppni.
Það er íslenski hjólaframleiðandinn Lauf cycling sem stendur á bak við keppnina, en hún var fyrst haldin árið 2019, eftir að fyrirtækið setti á markað sitt fyrsta malarhjól. Varð keppnin þannig að einskonar pílagrímsferð fyrir áhugasama hjólreiðamenn sem vildu fá að hjóla um í landslaginu þar sem hugmyndin að Lauf-hjólunum fæddist. Hafa hjólin enda vakið verðskuldaða athygli á undanförnum árum vegna sérstaks demparagaffals sem er nokkuð frábrugðinn hefðbundnum dempurum á hjólum.
Ólafur Thorarensen, sölu- og markaðsstjóri hjá Lauf, segir að af þeim tæplega 1.200 sem eru skráðir til leiks komi 90% erlendis frá og talsverður meirihluti þeirra frá Bandaríkjunum, en þar hafa malarhjólreiðar átt hvað bestu gengi að fagna. Ólafur segir að restin af erlendu keppendunum komi víðs vegar að úr heiminum, en flestir þó frá Evrópu. Þeir sem lengst komi að komi alla leið frá Ástralíu til þess að taka þátt í keppninni. Allt að helmingur hafi einnig komið áður og margir oftar en einu sinni. Því sé ljóst að keppnin togar fast í marga malarhjólreiðamenn sem eru með hana sem fastan punkt á hjóladagatalinu sínu.
Uppselt hefur verið öll árin í The Rift, en annað árið þurfti þó að aflýsa keppninni vegna faraldursins. Síðan þá hefur henni vaxið fiskur um hrygg og eftirspurnin alltaf verið meiri en framboð miða. Fyrstu þrjú árin var miðum í keppnina fjölgað nokkuð og upp í núverandi fjölda. Hefur sá fjöldi haldist síðan, en Ólafur segir að það sé í raun skortur á gistiplássi í nágrenni Hvolsvallar sem komi í veg fyrir að keppnin sé stækkuð enn meira. Ræst sé snemma að morgni og því séu keppendur ekki spenntir fyrir því að gista t.d. á höfuðborgarsvæðinu og keyra yfir 100 km um miðja nótt.
„Við viljum ekkert endilega stækka keppnina mikið, en 1.500 keppendur væri reyndar æðislegt," segir hann og bendir á að verið sé að byggja nýtt hótel á Hvolsvelli sem mun eflaust hjálpa eitthvað til.
Þá nefnir Ólafur einnig á að meðaldvöl keppenda á Hvolsvelli og nágrenni í heimsókn sinni til landsins sé 3-4 nætur. Yfir hásumartímann er ekki óalgengt að ferðamenn séu að keyra um landið og er meðaltími á hverjum stað því færri nætur og segir hann að þetta því sérstaklega gott fyrir ferðaþjónustuna. Til viðbótar segir Ólafur að stór hluti þeirra sem taki þátt nýti tækifærið og haldi í viku ferðalag um landið fyrir eða eftir keppnina.
The Rift er bæði keppni fyrir atvinnumenn sem horfa á góðan árangur sem stórt prik í ferilskrána og áhugafólk sem er að keppa við sjálft sig og aðra í svipuðum getuflokki. Ekki er óalgengt að fólk sem nálgast miðjan aldur finni sig í útivist, hvort sem um er að ræða utanvegahlaup eða hjólreiðar og segir Ólafur ekkert leyndarmál að stærsti hluti keppenda í The Rift sé á aldrinum 40 til 60 ára.
„Þetta er fólk í allskonar formi,“ segir hann og bendir á að sumir séu eins og atvinnumenn meðan aðrir séu þreklega vaxnir og meira gaman af því að lifa og njóta en að ná besta tímanum. Aðallega snúist þetta þá um að keppa við sjálfan sig. Með þennan aldursflokk segir Ólafur einnig að almennt sé um nokkuð efnaða ferðamenn að ræða sem séu á dýrari gerðinni af hjólum og komi hingað til lands, þrátt fyrir hátt verðlag, og ferðist um með fjölskyldunni.
Það að setja upp stóra keppni sem þessa, þar sem hjólað er 200 km leið þar af stór hluti á hálendinu, er ekki einföld aðgerð. Ólafur segir að Lauf ráði sérstakan skipuleggjanda, Hrannar Hafsteinsson hjá Live production, til að sjá um uppsetningu, merkingar og ýmiss önnur mál tengt keppnishaldinu og þegar allt sé tekið saman nemi sú vinna líklega 25-30% starfi yfir árið. Að sama skapi sé hann sjálfur í um 15% hlutfalli yfir árið sem tengist bara utanumhaldi, samskiptum og öðru skipulagi við keppnina
Þegar nálgast keppnisdag eykst þetta hlutfall nokkuð og segir Ólafur í smá gríni að nóttin í nótt hafi líklegast verið sú síðasta í þrjá til fjóra sólarhringa þar sem hann fær almennilegan svefn. Í raun segir hann að öll athygli annarra starfsmanna Lauf fari líka í keppnina síðustu dagana fyrir ræsingu.
Ólafur segir Lauf hafa verið gríðarlega heppið með teymi í kringum keppnishaldið og það hafi að mestu verið óbreytt síðustu þrjú árin. Fyrir utan að sjá um ræsingu og umgjörð við endamarkið þarf öryggisgæslu í brautinni, starfsmenn á drykkjar- og matarstöðvar, aðstoð við vöð og almenna stjórnun. Ólafur segir að hópurinn stækki alltaf þegar nær dragi keppni, en á keppnisdaginn sjálfan séu tæplega 70 starfsmenn.
Það er þó ekki aðeins keppt í 200 km vegalengd, því einnig er boðið upp á 100 km og segir Ólafur að um 25% keppenda fari þá vegalengd. Þá er einnig í boði þægilegt 45 km samhjól á keppnisdag, en slíkt sé meðal annars vinsælt meðal maka keppenda og annarra sem mæti til að fylgjast með. Ekki þarf að skrá sig í samhjólið og hefst það um klukkan 10 á laugardaginn.
Í ár var ákveðið að gera breytingu á kvennaflokki þannig að konurnar fara af stað hálftíma á undan körlunum, eða klukkan 7:00 meðan karlarnir ræsa 7:30. Segir Ólafur þetta gert til kvenkeppendur fái sína eigin keppni og séu meira að keppa við aðrar konur en að keppa við karlana. Hlutfall kvenna meðal þátttakenda er um 20%, en það gerir yfir 200 konur, þannig að um nokkuð stóran hóp er að ræða.
Meðal erlendra keppenda sem munu líklega skipa sér í fremsta flokk í keppninni í ár eru þau Simen Nordahl Svendsen, en hann varð öllum að óvörum sigurvegari í fyrra og mun líklega gera allt sem hann getur til að verja titilinn. Í kvennaflokki verða meðal annars þær Morgan Aguirre sem hjólar með Enough cycling og Leah Van der Linden. Þá er rétt að nefna að þrjár af helstu íslensku vonarstjörnunum mæta til leiks, en það er þríeykið Kristinn og Davíð Jónssynir og Breki Gunnarsson. Þá er gamla brýnið Hafsteinn Ægir Geirsson einnig skráður til leiks og það er aldrei hægt að afskrifa hann. Þannig varð Kristinn um daginn Íslandsmeistari í götuhjólreiðum og Hafsteinn í öðru sæti.
Ólafur segir að í ár verði aukin áhersla sett á markið og svæðið þar í kring. „Við ætlum að gera það að mun skemmtilegri upplifun þegar fólk kemur í markið.“ Segir hann að mun meira verði í boði en bara að koma í mark og svo upp á hótel í sturtu. Í fyrra skapaðist nokkuð góð stemning þegar fólk fékk sér pylsu og eitthvað að drekka eftir keppnina og slakaði á við endamarkið til að spjalla við aðra hjólara. Segir Ólafur að aukin áhersla sé sett á þetta atriði til að skapa sem bestu stemninguna. Þannig verði fullt af veitingum í boði, hoppukastalar fyrir börn, klakabað til að leggjast í beint eftir keppnina og margt fleira. Aðaláherslan sé að búa til góðar minningar fyrir alla sem komi.
„Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á hjólreiðum að koma á Hvolsvöll upp úr hádegi og taka á móti hjólurum, fá sér pylsu og eitthvað að drekka með því. Þú ert ekki nema eina og hálfa klukkustund austur og það verður gaman hjá okkur við endamarkið,“ segir Ólafur og bætir við að lokum: „Komdu og njóttu með okkur því þetta er alvöru keppni.“