Rannsókn miðar vel í ofbeldismálinu

Frá Reykholti.
Frá Reykholti. mbl.is/Sigurður Bogi

Rann­sókn miðar vel í máli er varðar grun um al­var­leg of­beld­is­brot í Reyk­holti í Bisk­upstung­um í lok apríl.

Jón Gunn­ar Þór­halls­son, yf­ir­lög­regluþjónn hjá lög­regl­unni á Suður­landi, staðfest­ir þetta í sam­tali við mbl.is, en kveðst ekki geta farið nán­ar út í stöðu rann­sókn­ar­inn­ar.

Með malt­neskt rík­is­fang

Eng­inn er í gæslu­v­arðhaldi vegna máls­ins, en Lands­rétt­ur hafnaði kröfu lög­regl­unn­ar á Suður­landi um áfram­hald­andi gæslu­v­arðhald vegna al­manna­hags­muna yfir pari sem ligg­ur und­ir grun um frels­is­svipt­ingu, lík­ams­árás og fjár­kúg­un.

Maður­inn sem varð fyr­ir of­beld­inu er með malt­neskt rík­is­fang, en all­ir sem hafa legið und­ir grun í mál­inu eru ís­lensk­ir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert