Engin ein skýring á niðursveiflu

Hún segir enga ástæðu til að hafa áhyggjur af því …
Hún segir enga ástæðu til að hafa áhyggjur af því að þurfi að taka upp hertari reglur í samfélaginu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Grein­ing­um á covid-19 hef­ur fækkað um­tals­vert á síðustu tveim­ur vik­um eft­ir að gripið var til aðgerða á Land­spít­ala vegna auk­ins fjölda til­fella.

Guðrún Asp­e­lund sótt­varna­lækn­ir seg­ir í sam­tali við Morg­un­blaðið að eng­in ein skýr­ing sé á niður­sveifl­unni. Hvort það hafi verið for­varn­ir inni á spít­al­an­um eða að minna sé um smit al­mennt í sam­fé­lag­inu sé ekki hægt að segja til um fyr­ir víst.

„Þetta er lík­lega raun­veru­leg fækk­un. Við feng­um töl­ur frá spít­al­an­um varðandi inn­lagn­ir og þá voru færri inniliggj­andi með önd­un­ar­færa­sýk­ing­ar og þar með talið covid,“ seg­ir Guðrún

Bæt­ir hún við að upp­sveifl­an í júlí og svo þessi niður­sveifla sem á sér stað núna, sé í sam­ræmi við það að það sé raun­veru­leg fækk­un veirunn­ar.

Kort/​mbl.is

Ekki neitt ástand skap­ast

Hún seg­ir enga ástæðu til að hafa áhyggj­ur af því að þurfi að taka upp hert­ari regl­ur í sam­fé­lag­inu.

„Það hef­ur ekki neitt ástand skap­ast sem kall­ar á svo­leiðis og þó inn­lögn­um á spít­al­ann hafi fjölgað, var þetta ekki eins og í vet­ur og ekki neitt sem kallaði á sér­stak­ar aðgerðir, fyr­ir utan það sem spít­al­an­um fannst ástæða til að gera hjá sér,“ bæt­ir hún við.

Guðrún seg­ir að covid sé ekki búið að vera til nógu lengi til að geta spáð fyr­ir um hvernig horf­ur verði næstu vik­ur, mánuði og ár.

„Búið er að bólu­setja mikið en samt er langt síðan. þannig áhrif­in á þeim eru far­in að dvína aðeins, sér­stak­lega hjá eldra fólk­inu. Síðan eru eng­ar aðgerðir í gangi og því er erfitt að spá fyr­ir ná­kvæm­lega hvernig þetta verður í framtíðinni miðað við þær aðstæður sem eru núna,“ bæt­ir hún við.

Guðrún hvet­ur eldra fólk til að þiggja bólu­setn­ingu. Boðið verður upp á bólu­setn­ingu í haust og ef það virðist vera ástæða til að bjóða hana oft­ar en einu sinni á ári þá verður það gert seg­ir Guðrún. Ástæðan af hverju ekki er boðið upp á bólu­setn­ingu strax er vegna þess að upp­fært bólu­efni er ekki komið til lands­ins.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert