Ellen Geirsdóttir Håkansson
Haraldur Þorleifsson, athafnamaður með meiru, hyggst taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í nafni Yazans Tamimi. Yazan er ellefu ára drengur frá Palestínu og er með vöðvarýrnunarsjúkdóm eins og Haraldur.
Þessu greinir Haraldur frá í færslu á samfélagsmiðlinum X.
Þá muni hann tvöfalda þau framlög sem berist.
Ég ætla að taka þátt í Íslandsbankahlaupinu og safna fyrir Yazan.
— Halli (@iamharaldur) August 1, 2024
Yazan er 11 ára strákur frá Palestínu með vöðvarýrnunarsjúkdóm eins og ég.
Það á að vísa honum úr landi sem mun hafa mjög alvarlegar afleiðingar fyrir heilsuna hans.
Þú getur heitið á mig og ég mun tvöfalda…
Mikið hefur verið fjallað um mál Yazans og fjölskyldu hans en til stendur að senda þau úr landi eftir verslunarmannahelgi. Yazan er með Duchenne-heilkennið, sem er vöðvarýrnunarsjúkdómur.
„Hann er hættur að geta gengið, þarf hjálp við að anda, þarf hjartalyf. Þetta hefur gríðarleg áhrif,“ sagði Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir, aðstandandi Yazans og meðlimur No Borders á Íslandi, í samtali við mbl.is í júní. Einkenni Yazans væru afar slæm miðað við jafnaldra og honum færi versnandi undir álagi.