Andlát: Ólafur Vignir Albertsson

Ólafur Vignir Albertsson.
Ólafur Vignir Albertsson. Ljósmynd/Aðsend

Ólafur Vignir Albertsson, píanóleikari, lést á líknardeild L-5 á Landakoti laugardaginn 3. ágúst síðastliðinn.

Ólafur Vignir fæddist í Reykjavík 19. maí 1936, sonur hjónanna Alberts Ólafssonar, múrarameistara, og Guðrúnar Magnúsdóttur, húsmóður. Yngri systur Ólafs Vignis eru Sesselja Margrét Albertsdóttir, Guðný Böðvarsdóttir og Alberta Guðrún Böðvarsdóttir er lést 5. maí síðastliðinn.

Tónlistarhæfileikar Ólafs Vignis komu snemma í ljós. Áður en hann hóf nám í barnaskóla var hann farinn að spila lög eftir eyranu á píanó sem hann hafði heyrt í útvarpinu.

Eftir nám í Verslunarskóla Íslands, lauk Ólafur Vignir einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1961. Hann fór síðan í framhaldsnám í píanóleik við Royal Academy of Music í London á árunum 1963 og 1964.

Ólafur Vignir var skólastjóri Tónlistarskóla Eyrarbakka frá 1961 til 1963 og skólastjóri Tónlistarskóla Mosfellsbæjar frá 1965 til 1993. Ólafur Vignir var kennari og meðleikari við Söngskólann í Reykjavík frá 1993 til 2006.

Á tónlistarferli sínum lék Ólafur Vignir á miklum fjölda tónleika innanlands, í Evrópu og í Norður-Ameríku. Hljómplöturnar og geisladiskarnir sem hann lék inn á, með öllum fremstu söngvurum landsins, eru 50 til 60 talsins. Auk þess liggur eftir hann ótölulegur fjöldi hljóðritana, bæði í Ríkisútvarpi og Sjónvarpi, þar sem hann leikur með fjölda söngvara.

Síðustu 20 árin ritskýrði hann, í samstarfi við Jón Kristinn Cortez, vandaðri útgáfu af íslenskum sönglögum og heildarútgáfum verka margra íslenskra tónskálda sem gefin hafa verið út af tónverkamiðstöðinni Ísalögum.

Ólafur Vignir kvæntist Þuríði Einarsdóttur árið 1957, en hún lést 5. mars síðastliðinn. Börn þeirra hjóna eru þrjú: Albert, kvæntur Sveinbjörgu Rósu Sumarliðadóttur, Inga Rún, gift Steinari B. Val Sigvaldasyni, og Anna Dís. Barnabörnin eru fimm, þar af fjögur á lífi, og barnabarnabörnin tvö.

Útför Ólafs Vignis Albertssonar fer fram frá Hallgrímskirkju þann 12. ágúst næstkomandi klukkan 13.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert