Hafa upplýst skemmdarverkin á Blönduósi

Dýr tæki voru eyðilögð í eldhúsinu.
Dýr tæki voru eyðilögð í eldhúsinu. Samsett mynd

Lögreglan á Norðurlandi vestra telur sig hafa fundið þá sem stóðu að umtalsverðum eignaspjöllum og skemmdarverkum sem unnin voru á Húnaskóla á Blönduósi í nótt.

Rúður og hurðir voru brotnar, auk þess sem dýr tæki í mötuneyti skólans voru skemmd. 

Vilhjálmur Stefánsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra, segir í samtali við mbl.is að tveir einstaklingar séu grunaðir um verknaðinn. Báðir eru undir sakhæfisaldri og verður rannsókn málsins fram haldið í samstarfi við félagsmálayfirvöld.

„Þetta er bara óvitaskapur þessara einstaklinga, og það er afar leiðinlegt að þetta hafi gerst,“ segir Vilhjálmur í samtali við mbl.is. 

Svona leit aðkoman í eldhúsið út.
Svona leit aðkoman í eldhúsið út. Ljósmynd/Aðsend

Kostnaður hleypur á milljónum

Anna Margrét Sigurðardóttir, aðstoðarskólastjóri Húnaskóla, segir aðkomuna að skólanum í morgun hafa verið ömurlega en að skemmdarverk sem þessi séu sjaldséð.

„Í þessum skemmdarverkum eyðilögðust afar dýr tæki í mötuneytinu og er ljóst að kostnaðurinn verður einhverjar milljónir, þó að erfitt sé að slá nákvæma tölu á hann,“ segir Anna.

Rúður voru brotnar víðsvegar í skólanum, þar á meðal í smíðastofunni. Þá var eldhús skólans lagt í rúst og mörg dýr tæki skemmd, að sögn Önnu. 

Óvissa með framhaldið

Anna segir nokkra óvissu með framhaldið en sumarfríi grunnskólanema lýkur brátt auk þess sem leikskólabörn áttu að mæta aftur í þessari viku. 

„Ég vona að það helsta verði komið í lag áður en skólinn sjálfur byrjar. Þetta kemur þó verr niður á leikskólanum sem er hér einnig í húsinu, en þar voru einnig talsverðar skemmdir.

Leikskólinn átti að opna núna á fimmtudaginn en mötuneytið hefur einnig verið notað af honum svo eitthvað af þessu veltur á því hve langan tíma tekur að fá ný tæki í eldhúsið,“ segir Anna.

Rúður voru víða brotnar.
Rúður voru víða brotnar. Ljósmynd/Aðsend
Brotnar rúður blöstu við starfsmönnum í morgun.
Brotnar rúður blöstu við starfsmönnum í morgun. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert