Enginn fékk 1. vinninginn í Lottó-útdrætti kvöldsins en tveir miðaeigendur skiptu með sér bónusvinningnum sem færir þeim rúmar 650 þúsund krónur. Báðir miðarnir voru keyptir í Lottó-appinu.
Þetta segir í tilkynningu frá Íslenskum getraunum.
Enginn var með 1. vinning í Jóker-útdrættinum en þrír miðaeigendur deila með sér 2. vinning og fá þeir allir 100 þúsund krónur. Tveir eru með miðanna sína í áskrift og einn miðinn var keyptur á vefnum.