Ekki sá Pétur sem hann hitti

Daði Björnsson og Páll Jónsson voru báðir dæmdir í málinu …
Daði Björnsson og Páll Jónsson voru báðir dæmdir í málinu á síðasta ári. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Nei,“ svaraði Daði Björns­son ákveðið, spurður af sak­sókn­ara hvort hann þekkti mann­inn sem sat í dómssal í aðalmeðferð stóra kókaín­máls­ins, Pét­ur Jök­ul Jónas­son.

Daði var dæmd­ur í fimm ára fang­elsi í Lands­rétti fyr­ir sína aðkomu að til­raun til að smygla tæp­lega 100 kg af kókaíni til lands­ins.

Hann var sá eini af fjór­um, sem hafa verið dæmd­ir í mál­inu, sem voru í sam­skipt­um við Pét­ur. Hvaða Pét­ur sagðist hann ekki vita.

Pétur Jökull í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Pét­ur Jök­ull í Héraðsdómi Reykja­vík­ur í dag. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Ótt­ast eng­an

Sak­sókn­ari spurði Daða hvort hann óttaðist ein­hvern í tengsl­um við málið og svaraði Daði þá einnig staðfast­lega: „Nei.“

Dóm­ari spurði Daða einnig hvort hann væri al­veg viss um að Pét­ur Jök­ull hefði ekki verið maður­inn sem hann var í sam­skipt­um og hitti vegna máls­ins.

„Al­veg viss um það,“ svaraði Daði og sagði að hann vissi ekki hvaða Pét­ur hann hefði verið í sam­skipt­um við.

Bar fyr­ir sig að hafa verið í neyslu

Í skýrslu­tök­unni bar Daði fyr­ir sig að hafa verið í mik­illi neyslu árið 2022 er inn­flutn­ing­ur­inn átti sér stað.

Spurður hvernig það kom til að hann kynnt­ist þess­um Pétri sagðist hann hafa fengið sím­tal og ákveðið að hitta hann. Daði sagðist ekki hafa hug­mynd um hvernig Pét­ur vissi af hon­um.

Hann sagði að sam­skipt­in við Pét­ur hefðu farið fram í eig­in per­sónu og í gegn­um sam­skipta­for­ritið Signal. Þá sagðist hann ekki muna hvort hann hefði hitt hann oft­ar en einu sinni.

Daði hafði lýst Pétri sem stór­gerðum, þrekn­um og ljós­hærðum manni sem var oft klædd­ur í  jakka með Stone Is­land-merki. Pét­ur Jök­ull viður­kenndi fyr­ir dómi að hafa átt slík­an jakka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert