Varar við fleiri tilfellum í vetur

Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir á von á því að covid-tilfellum fjölgi …
Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir á von á því að covid-tilfellum fjölgi aftur í vetur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðrún Asp­e­lund sótt­varna­lækn­ir var­ar við því að covid-til­fell­um á Íslandi muni fjölga í vet­ur þrátt fyr­ir að til­fell­um hafi fækkað und­an­farn­ar vik­ur.

Í viðtali við mbl.is seg­ir Guðrún að þó staðan virðist vera ró­leg sem stend­ur, sé veir­an enn til staðar.

„Við erum að sjá á milli 20 og 30 til­felli á viku núna,“ seg­ir Guðrún. „En það eru auðvitað fleiri sem veikj­ast án þess að leita til lækn­is eða fara í PCR-próf. Þessi töl­ur gefa okk­ur þó ákveðna mynd af stöðunni.“

Hún tek­ur einnig fram að í sum­ar hafi til­fell­um fjölgað tíma­bundið og að veir­an hafi þá náð ákveðnum toppi, en staðan hafi síðan ró­ast aft­ur.

„Þetta er þó enn í dreif­ingu aug­ljós­lega,“ bæt­ir hún við, „en við eig­um ekk­ert von á því að þetta fari, covid er ekk­ert að haga sér þannig.“

Hóp­sýk­ing í sum­ar

Þegar Guðrún er spurð hvort ein­hver al­var­leg til­felli sem leitt hafi til inn­lagna á sjúkra­hús hafi komið, út­skýr­ir hún að nokkr­ir ein­stak­ling­ar hafi greinst með kór­ónu­veiruna á spít­al­an­um.

„Við vit­um ekki ná­kvæm­lega hverj­ir eru þar vegna covid eða hafa verið lagðir inn af öðrum or­sök­um en fá svo ein­kenni,“ seg­ir hún.

„Fólk sem var á spít­al­an­um fékk ein­kenni og það var kannski ekki aðalástæðan fyr­ir því að það var á spít­al­an­um, en auðvitað gat það valdið því að und­ir­liggj­andi sjúk­dóm­ar versnuðu eða lengdu dvöl­ina.“

Guðrún nefn­ir einnig hóp­sýk­ingu sem átti sér stað á spít­al­an­um í sum­ar sem hafi valdið því að til­fell­um fjölgaði þar á meðal starfs­fólks og sjúk­linga. „Þá voru flest­ir með væg ein­kenni,“ bæt­ir hún við.

Covid fer ekk­ert í burtu

Þrátt fyr­ir þessa fækk­un til­falla var­ar Guðrún við því að ástandið gæti breyst með vetr­in­um. „Við eig­um samt von á því að covid-til­fell­um fjölgi aft­ur í vet­ur eins og hef­ur verið. Það er svona hegðun þess­ara önd­un­ar­færa­sýk­inga í okk­ar heims­hluta, þetta er meira yfir vet­ur­inn,“ út­skýr­ir hún.

Hún tal­ar um að covid sé enn til­tölu­lega nýr sjúk­dóm­ur, þrátt fyr­ir að hafa verið til staðar í fjög­ur ár. „Það er ekki al­veg komið svona ákveðið mynstur,“ seg­ir Guðrún.

„Covid fer ekki í burtu eins og in­flú­ens­an ger­ir. Þannig hún hegðar sér klár­lega öðru­vísi eins og er, og ekki komið al­veg svona ákveðið mynstur þannig maður geti sagt til um hvernig þetta verður með þau til­felli, hvorki núna í haust eða vet­ur eða næsta sum­ar,“ seg­ir Guðrún

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert