Þó enginn hafi náð að næla sér í fyrsta vinning í lottóútdrætti kvöldsins var Jókerinn gjafmildur. Næsta laugardag verður því fimmfaldur pottur.
Þrír miðaeigendur voru með 1. vinning í Jókernum og fá þeir allir tvær milljónir króna í sinn hlut.
Tveir keyptu miðana sína í Lottó appinu en einn er með miðann sinn í áskrift.
Tveir heppnir fengu bónusvinninginn og fá þeir rúmar 416 þúsund krónur í sinn vasa. Sex miðaeigendur voru með 2. vinning og fá þeir allir 100 þúsund krónur í sinn hlut.
Einn miðahafi er með miðann sinn í áskrift en aðrir miðar voru keyptir á N1 Ísafirði, N1 Borgarnesi, Olís Gullinbrú, Versluninni Bakkinn á Eyrarbakka og Siglósporti á Siglufirði.