Reistu legsteina við Gróttu til að minnast horfinna jökla

Til að minnast jöklanna voru draugalegir legsteinar reistir úr ís …
Til að minnast jöklanna voru draugalegir legsteinar reistir úr ís við Gróttu. Gera má ráð fyrir að þessar vofur bráðni á endanum, rétt eins og gömlu risarnir sem þær tákna. mbl.is/Hákon

Jökla­gra­freit­ur var í gær reist­ur við Gróttu á Seltjarn­ar­nesi til að minn­ast þeirra jökla sem hafa horfið af yf­ir­borði jarðar á umliðnum árum. Tíu ár eru síðan Ok var af­skráður sem jök­ull á Íslandi en tugþúsund­ir jökla hafa horfið á und­an­förn­um ára­tug­um um all­an heim.

Af því til­efni var í dag efnt til göngu á fjallið sem eitt sinn var Ok­jök­ull.

Sam­einuðu þjóðirn­ar ákváðu ný­lega að árið 2025 yrði helgað jökl­um á hverf­anda hveli og að 21. mars ár hvert yrði dag­ur jökla.

Í til­kynn­ingu frá Há­skóla Íslands seg­ir að þetta sé gert til að vekja at­hygli á mik­il­vægi jökla, snæv­ar og íss í vatna­fræðilegu og veðurfars­legu sam­hengi og með efna­hags­legu, sam­fé­lags­legu og um­hverf­is­legu til­liti.

Í aðdrag­anda jökla­árs­ins standa ýms­ar stofn­an­ir, há­skól­ar og alþjóðasam­tök fyr­ir viðburðum til þess að beina at­hygli að jökla­breyt­ing­um og mik­il­vægi þeirra. Þeir fyrstu hér á landi fara fram í dag og á morg­un.

Jökla­gra­freit­ur reist­ur við Gróttu í dag

Í gær var hald­inn viðburður þar sem vak­in var at­hygli á jökl­um sem eru að hverfa eða þegar horfn­ir. Hann var á veg­um Rice-há­skóla, Jökla­rann­sókna­fé­lags Íslands, Nátt­úru­m­inja­safns Íslands, Veður­stofu Íslands, Há­skóla Íslands, Alþjóðlegu jökla­breyt­inga­sam­tak­anna (World Glacier Monitor­ing Service, WGMS) og Menn­ing­ar­mála­stofn­un­ar Sam­einuðu þjóðanna (UNESCO).

Opnaður verður alþjóðleg­ur listi yfir 15 valda jökla sem eru horfn­ir eða eiga stutt eft­ir, en hann verður að finna á vefsíðunni Global Glacier Ca­sualty List.

Þá var haldið út á Seltjarn­ar­nes þar sem reist­ur var tíma­bund­inn gra­freit­ur með leg­stein­um úr ís í námunda við hús Nátt­úru­m­inja­safns Íslands nærri Gróttu. Þar verða les­in upp eft­ir­mæli um alla jökl­ana á list­an­um.

Tugþúsund­ir jökla hafa horfið á und­an­förn­um ára­tug­um um all­an heim og hug­mynd­in er að bæta við list­ann jafnóðum og jökl­ar hverfa.

Jökl­ar lands­ins voru kortlagðir um alda­mót­in síðustu og reynd­ust þeir rúm­lega 300 tals­ins. Þegar jökl­arn­ir voru kortlagðir að nýju 2017 og 2019 höfðu tug­ir þeirra horfið. Þess má geta að flat­ar­mál ís­lenskra jökla hef­ur minnkað um tæp­lega 850 km2 frá alda­mót­um og um 2.300 km2 frá lok­um 19. ald­ar.

Tíu ár síðan Ok leið und­ir lok

Þekkt­ast­ur horf­inna jökla hér á landi er lík­lega Ok sem var af­skráður sem jök­ull haustið 2014 þegar ljóst var hann væri hætt­ur að skríða und­an eig­in þunga.

Fimm ár eru nú liðin síðan reist­ur var minn­ing­ar­skjöld­ur um Ok­jök­ul en dán­ar­til­kynn­ing  var gef­in út í ág­úst 2014. 

Af því til­efni verður efnt til göngu á fjallið í dag, sunnu­dag­inn 18. ág­úst. Gang­an er hald­in í sam­starfi Jökla­rann­sókna­fé­lags Íslands, Ferðafé­lags Íslands og Rice-há­skóla í Texas.

Alþjóðajökla­árið 2025 verður notað til þess að beina at­hygli al­menn­ings og fjöl­miðla að rýrn­un jökla og efla vökt­un og rann­sókn­ir á jökla­breyt­ing­um. Aðild­ar­ríki Sam­einuðu þjóðanna eru hvött til þess að skipt­ast á gögn­um, þekk­ingu og aðferðum til þess að sporna gegn rýrn­un jökla og skipu­leggja aðlög­un að þeim breyt­ing­um sem hörf­un þeirra veld­ur.

Hug­mynd­in að baki ári jökl­anna 2025 kom frá Tads­ík­ist­an og hef­ur verið út­færð á veg­um UNESCO, Alþjóðaveður­fræðistofn­un­ar­inn­ar (WMO), Alþjóðlegu jökla­breyt­inga­sam­tak­anna (WGMS) og fleiri alþjóðastofn­ana. Efnt verður til marg­vís­legra viðburða á næsta ári á alþjóðavett­vangi í til­efni af ári jökl­anna og einnig hér á landi.

Tugþúsundir jökla hafa horfið á undanförnum áratugum um allan heim …
Tugþúsund­ir jökla hafa horfið á und­an­förn­um ára­tug­um um all­an heim og hug­mynd­in er að bæta við list­ann jafnóðum og jökl­ar hverfa. mbl.is/​Há­kon
Sameinuðu þjóðirnar ákváðu nýlega að árið 2025 yrði helgað jöklum …
Sam­einuðu þjóðirn­ar ákváðu ný­lega að árið 2025 yrði helgað jökl­um á hverf­anda hveli og að 21. mars ár hvert yrði dag­ur jökla. mbl.is/​Há­kon
Þekktastur horfinna jökla hér á landi er líklega Ok sem …
Þekkt­ast­ur horf­inna jökla hér á landi er lík­lega Ok sem var af­skráður sem jök­ull haustið 2014 þegar ljóst var hann væri hætt­ur að skríða und­an eig­in þunga. mbl.is/​Há­kon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert