Landhelgisgæslan hefur fengið hjálp danska sjóhersins við að flytja búnað frá Reykjavík að Breiðamerkurjökuli þar sem íshellir hrundi yfir göngufólk fyrr í dag. Frakkar eru einnig reiðubúnir að leggja hönd á plóg sé þess þörf.
25 manna hópur var í skipulagðri ferð um Breiðamerkurjökul með fararstjórn í dag þegar íshellir hrundi. Fjórir þeirra lentu undir ísfarginu en búið er að koma tveimur undan. Tveggja er enn leitað. Að minnsta kosti þrír eru taldir alvarlega slasaðir eftir að íshellirinn hrundi.
Svo virðist sem veggur hellsins hafi hrunið að sögn lögreglu. Tilkynning barst viðbragðsaðilum snemma á fjórða tímanum í dag.
Umfangsmiklar björgunaraðgerðir hafa staðið yfir síðan upp úr 15 í dag.
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru ræstar út.
„Síðan óskuðum við eftir því við danska sjóherinn hvort hægt væri að fá þyrlu frá Vædderen, danska varðskipinu, til að flytja mannskap og búnað frá Reykjavík,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við mbl.is.
„Sú þyrla er bara á leiðinni á staðinn,“ bætir hann við.
Og til vonar og vara leitaði gæslan einnig á náðir fransks herskips sem er hluti af fastaflota Atlantshafsbandalagsins. Skipið er hér á vegum varnaræfingarinnar Norður-Víkings.
„Frakkarnir voru reiðubúnir að aðstoða en það kom ekki til þess að við þurftum á því að halda.“
Það er því alls búið að ræsa út þrjár þyrlur vegna slyssins, tvær frá gæslunni og eina frá danska sjóhernum.
Einn af göngumönnunum sem slösuðust hefur verið fluttur með þyrlu til Hafnar. Þaðan var hann fluttur með sjúkraflugi á Fossvogsspítala í Reykjavík. Sá er talinn alvarlega slasaður.
Fleiri slasaðir hafa ekki verið fluttir með þyrlu að svo stöddu.
Slysið er talið grafalvarlegt. Unnið er að björgunarstörfum á vettvangi. Ekki er vitað um ástand á fólki á þessari stundu, að sögn lögreglu.
Almannavarnir hafa virkjað hópslysaáætlun, opnað samhæfingarstöð auk þess sem búið er að opna fjöldahjálparstöð í Öræfum.