Synjað um áfrýjun meiðyrðamáls

Arnar Þór, til vinstri, ásamt lögmanni sínum Vilhjálmi Hans Vilhjálmssyni …
Arnar Þór, til vinstri, ásamt lögmanni sínum Vilhjálmi Hans Vilhjálmssyni við rekstur meiðyrðamálsins í héraði. mbl.is/Árni Sæberg

Hæstirétt­ur hafnaði í dag beiðni þeirra Arn­ars Þórs Ing­ólfs­son­ar og Þórðar Snæs Júlí­us­son­ar blaðamanna um áfrýj­un dóms Lands­rétt­ar frá í maí þegar sýknu­dóm­ur var kveðinn þar upp yfir Páli Vil­hjálms­syni fyr­ir vefskrif hans í meiðyrðamáli sem þeir Arn­ar og Þórður höfðuðu gegn hon­um fyr­ir um­mæli í þeirra garð tengd Sam­herja­mál­inu og kröfðust ómerk­ing­ar um­mæl­anna.

Bar Páll stefn­end­um á brýn að hafa framið hegn­ing­ar­laga­brot með því að stela síma Páls Stein­gríms­son­ar skip­stjóra í kjöl­far þess að hafa byrlað hon­um á ólyfjan á meðan hann lá á spít­ala um það leyti sem fjöl­miðlaum­fjöll­un um svo­kallaða „skæru­liðadeild“ út­gerðarfé­lags­ins stóð sem hæst.

Byggja á veru­legu al­mennu gildi

Voru um­mæli Páls Vil­hjálms­son­ar í skrif­um hans dæmd ómerk í héraði en Lands­rétt­ur sneri þeim dómi við áfrýj­un máls­ins sem fyrr seg­ir.

Vís­ar Hæstirétt­ur til lag­araka við fyrri meðferðir máls­ins og rek­ur þar rök­stuðning og vís­an­ir á neðri dóm­stig­um til tján­ing­ar­frels­isákvæðis stjórn­ar­skrár og mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu.

Kveða dóm­ar­ar Hæsta­rétt­ar leyf­is­beiðend­ur byggja á því að úr­lausn máls­ins hafi veru­legt al­mennt gildi. Aðferðafræði Lands­rétt­ar við mat á um­mæl­un­um eigi við um mat á gild­is­dóm­um og sé sú aðferðafræði and­stæð dóma­fram­kvæmd að mati áfrýj­un­ar­beiðenda. Dóm­ur Lands­rétt­ar sé þá að þeirra mati rang­ur og varði mik­il­væga hags­muni.

Segja dóm­ar­ar Hæsta­rétt­ar hvorki litið svo á, af gögn­um máls­ins að ráða, að úr­slit þess hafi veru­legt al­mennt gildi né varði mik­il­væga hags­muni leyf­is­beiðenda í skiln­ingi laga. Þá verði ekki séð að málsmeðferð neðri dóm­stiga hafi verið form­lega ábóta­vant eða dóm­ur Lands­rétt­ar verið ber­sýni­lega rang­ur.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert