Tvö umferðaróhöpp urðu í gærkvöldi, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Ekki urðu þó slys á fólki.
Tilkynnt var um þjófnað úr verslun í miðborginni. Var einn handtekinn síðar um kvöldið í tengslum við málið.
Þá barst lögreglu tilkynningar um ökumenn að reykspóla, annars vegar í Kópavogi og hins vegar í Breiðholti. Báðir voru farnir af vettvangi þegar lögreglu bar að garði.
Þá var nokkuð um tilkynningar vegna ölvaðra einstaklinga fyrri part kvölds.