Yfirframleiðandinn kominn með stöðu sakbornings

„Já, það er rétt,“ seg­ir Arn­ar Þóris­son kvik­mynda­gerðarmaður og yf­ir­fram­leiðandi frétta­skýr­ing­arþátt­ar­ins Kveiks hjá Rík­is­út­varp­inu í sam­tali við mbl.is, spurður um hvort hann hefði fengið stöðu sak­born­ings í máli sem varðar stuld á farsíma Páls Stein­gríms­son­ar skip­stjóra og sem slík­ur verið kallaður til yf­ir­heyrslu hjá lög­regl­unni í síðustu viku.

Arn­ar kvaðst ekki hafa verið kallaður til yf­ir­heyrslu vegna máls­ins fyrr, en svo sem kunn­ugt er hafa fjór­ir blaðamenn stöðu sak­born­ings í mál­inu.

Hann sagði að lög­regl­an hefði spurt sig um ým­is­legt sem sím­ann varðaði, svo sem hvort hann hefði haft aðkomu að hvarfi sím­ans og að sím­inn hafi verið opnaður, en Arn­ar kvaðst ekki hafa viljað tjá sig um það. DV greindi fyrst frá þess­ari nýju fram­vindu máls­ins.

Spurður um hvort hon­um væri kunn­ugt um næstu skref í mál­inu sagði hann svo ekki vera, að öðru leyti en því að hon­um hefði verið tjáð að rann­sókn máls­ins væri á loka­metr­un­um og lög­regl­an myndi skila því af sér til ákæru­sviðs á næstu vik­um.

Arn­ar sagðist aldrei hafa lent í því fyrr að vera kallaður til yf­ir­heyrslu hjá lög­regl­unni.

„Þetta fer í lífs­reynslu­bank­ann. Þetta var ekk­ert sárt af minni hálfu, en mér finnst það furðulegt hvað hægt er að halda þessu máli gang­andi lengi. Ég ef­ast ekki að öll­um þeim sem að þessu koma finn­ist það líka. Ég skynjaði það líka hjá fólk­inu sem var að spyrja mig spurn­inga að það væri ör­ugg­lega til í að vera að gera eitt­hvað annað, án þess að ég ætli að fara að gera því upp hugs­an­ir,“ seg­ir Arn­ar og kvaðst aðspurður ekki vita hvort til stæði af hálfu lög­regl­unn­ar að kalla hann aft­ur til yf­ir­heyrslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert