Andlát: Benedikt Sveinsson

Benedikt Sveinsson, lögmaður og athafnamaður í Garðabæ, lést á þriðjudagskvöld, 86 ára gamall.

Benedikt fæddist í Reykjavík 31. júlí 1938 og ólst upp í húsi sem stóð á Laugavegi 18 til tíu ára aldurs, en þá flutti fjölskyldan í Hlíðarnar. Benedikt bjó í Garðabæ frá 1966. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1958 og embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1964, nam viðskiptafræði við Minnesotaháskóla 1964-65 og hæstaréttarlögmaður frá 1969.

Benedikt stundaði lögmennsku ásamt skipasölu um árabil, naut mikils trausts í viðskiptalífi og einn helsti forystumaður í íslensku athafnalífi um áratugaskeið. Hann sat í stjórn ótal fyrirtækja, iðulega sem stjórnarformaður, og má nefna Sjóvá, síðar Sjóvá-Almennar, Eimskip, Burðarás, Flugleiðir, Marel, SR mjöl, Granda og Nesskip.

Hann var nátengdur örri uppbyggingu Garðabæjar; formaður sjálfstæðisfélags Garða- og Bessastaðahrepps 1973-75, í skólanefnd Garðabæjar 1974-86 og bæjarfulltrúi í Garðabæ 1986-98, þar af oddviti meirihlutans og atkvæðamikill formaður bæjarráðs í tíu ár. Gekk í Rótarýklúbbinn Görðum 1976 og var virkur félagi í hreyfingunni alla starfsævi sína.

Benedikt var frá fyrstu tíð viðloðandi íþróttir, keppti í fótbolta með yngri flokkum Vals, en síðar ötull stuðningmaður Stjörnunnar og var sæmdur gullmerki félagsins. Hin síðari ár lagði hann stund á golf, en einnig kunnur stangveiðimaður.

Foreldrar Benedikts voru Sveinn Benediktsson (1905-1979), framkvæmdastjóri í Reykjavík, og Helga Ingimundardóttir (1914-2008), húsmóðir. Sveinn var sonur Benedikts Sveinssonar þingforseta (1877-1954) og kvenskörungsins Guðrúnar Pétursdóttur frá Engey (1878-1963). Meðal systkina Sveins má nefna dr. Bjarna forsætisráðherra og Pétur bankastjóra, en einn bræðra Helgu var Einar sýslumaður og alþingismaður. Systkini Benedikts eru Ingimundur arkitekt, Guðrún lögfræðingur og Einar forstjóri.

Eftirlifandi eiginkona Benedikts er Guðríður Jónsdóttir og varð þeim þriggja sona auðið. Þeir eru Sveinn tölvunarfræðingur, Jón rafmagnsverkfræðingur og Bjarni, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Barnabörn Benedikts og Guðríðar eru átta og barnabarnabörn fjögur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert