Búið að fella björninn

Nú rétt fyrir kl. 16 var hvítabjörn, sem gekk hafði á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum, aflífaður.

Lögreglan á Vestfjörðum greinir frá þessu.

„Tveir lögreglumenn frá Ísafirði, sem fluttir voru með björgunarbátnum Kobba Láka úr Bolungarvík og séraðgerðasvið LHG, sem flutt var með þyrlu LHG önnuðust verkefnið.
Dýrið fannst í fjörunni skammt frá sumarhúsinu Grímsbæ á Höfðaströnd, hvar ein manneskja hélt til. En hún hafði séð dýrið fyrir utan húsið fyrr í dag,“ segir lögreglan í tilkynningu. 

Þá segir, að þyrla LHG muni fljúga yfir svæðið og tryggja að engin önnur bjarndýr séu á svæðinu.

„Lögreglan á Vestfjörðum og Landhelgisgæslan telur að öll hætta sé liðin hjá vegna landgöngu hvítabjarna,“ segir jafnframt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert