Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg

Maðurinn sem lést í vinnuslysi á byggingarsvæði í Árborg á þriðjudaginn hét Eiríkur Rúnar Eiríksson.

Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu.

Maðurinn var um fimmtugt og lést er hann féll af fjölbýlishúsi í byggingu. Hann var úrskurðaður látinn á vettvangi. Lögreglan fer með rannsókn málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert