Tveir í haldi grunaðir um mansal og smygl á fólki

Stúlkurnar komu til landsins í júlí í fyrra.
Stúlkurnar komu til landsins í júlí í fyrra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Umfangsmikil mansalsrannsókn er í gangi hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Tveir menn voru úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald eftir að í ljós kom að tvær stúlkur undir 18 ára aldri voru ranglega skráðar sem dætur annars þeirra. Var það ljóst eftir niðurstöðu úr DNA-prófi.

Í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir öðrum manninum kemur fram að grunur leiki á því að maðurinn hafi ætlað sér að hagnýta stúlkurnar í mansal.

Fram kemur úr úrskurði Héraðsdóms Reykjaness sem staðfestur var í Landsrétti á þriðjudag að rannsókn lögreglu snúi að mansali, skjalafalsi, röngum framburði og að hafa skipulagt smygl á fólki til landsins.

Skráður faðir í kerfum stjórnvalda 

Í gæsluvarðhaldsúrskurði í héraðsdómi kemur fram að stúlkurnar hafi komið til landsins í júlí í fyrra. Þær sögðust vera komnar til Íslands til að hitta föður sinn sem ætti heima á Íslandi.

Við uppflettingu hjá lögreglu mátti sjá að þeim hafði verið veitt dvalarleyfi á grundvelli þess að þær ættu íslenskan föður. Jafnframt var hann skráður í kerfum stjórnvalda sem faðir stúlknanna.

Faðirinn var ekki á landinu þegar stúlkurnar komu til landsins og voru þær í umsjá barnaverndaryfirvalda þar til maðurinn kom til landsins.

Fram kemur að lögregla hafi rökstuddan grun til að ætla að stúlkurnar búi við slæmar aðstæður. Fyrir liggur að önnur stúlkan er þunguð en hin er HIV-smituð.

Að kröfu Útlendingastofnunar voru stúlkurnar sendar í DNA-próf og tekið var sýni úr meintum föður þeirra einnig. Í ljós kom að hann var ekki faðir þeirra.

Blekkti íslensk stjórnvöld vísvitandi

Þá segir að grunur lögreglu snúi að því að maðurinn hafi vísvitandi blekkt íslensk stjórnvöld og gefið upp rangar upplýsingar í því skyni að fá dvalarleyfi fyrir aðila á fölskum forsendum. Þá að ætlunin hafi verið að hagnýt stúlkurnar með það fyrir sjónum að hagnast á því.

Þá segir að lögreglu gruni að maðurinn sé ekki einn að verki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert