Bjarni hefur staðfest skipulagsbreytingar

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra. mbl.is/Eyþór

Forsætisráðherra hefur staðfest breytingar á skipulagi forsætisráðuneytisins og hefur nýtt skipurit tekið gildi.

Skrifstofum ráðuneytisins fækkar úr fjórum í þrjár í kjölfar flutnings jafnréttis- og mannréttindamála yfir á málefnasvið félags- og vinnumarkaðsráðherra, að því er ráðuneytið greinir frá.

Jafnframt hefur heitum skrifstofa verið breytt til að skýra betur hlutverk þeirra og ábyrgðarsvið:

  • Skrifstofa stjórnskipunar
  • Skrifstofa samhæfingar
  • Skrifstofa fjármála

Tekið er fram, að markmið breytinganna sé að efla samstarf og samvinnu milli skrifstofa og auka sveigjanleika. Einnig sé aukin áhersla lögð á verkefna- og teymisvinnu sem sé dregið fram í framsetningu nýs skipurits.

Þá segir í tilkynningunni, að málefni þjóðgarðsins á Þingvöllum, sem hafi verið flutt til forsætisráðuneytisins, heyri undir skrifstofu fjármála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert