Lögðu hald á eitt kíló af kókaíni

Mennirnir voru úrskúrðaðir í gæsluvarðhald í vikunni.
Mennirnir voru úrskúrðaðir í gæsluvarðhald í vikunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fyrr í vikunni voru tveir úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðahald að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á innflutningi fíkniefna. 

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að lagt hafi verið hald á eitt kíló af kókaíni, sem kom hingað til lands með póstsendingu. 

„Rannsókn málsins hefur miðað vel, en öðrum hinna handteknu var sleppt úr haldi lögreglu fyrr í dag,“ segir jafnframt í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert