Spilar í 100. sinn í Eldborg á laugardag

Björn Jörundur Friðbjörnsson, Ólafur Hólm og Daníel Ágúst Haraldsson á …
Björn Jörundur Friðbjörnsson, Ólafur Hólm og Daníel Ágúst Haraldsson á stórtónleikum síðasta árs í Eldborg. Ljósmynd/Kristinn R. Kristinsson

„Þessi rauði salur er einstaklega fallegur og einhvern veginn heldur voðalega vel utan um þessi fimmtán hundruð manns sem geta komist þar fyrir,“ segir trommuleikarinn Ólafur Hólm um Eldborg í Hörpu.

Fáir þekkja betur að koma fram í Eldborgarsalnum en Ólafur, sem á laugardag mun spila í hundraðasta sinn í tónleikasalnum glæsilega þegar hljómsveitin Nýdönsk heldur sína árlegu stórtónleika.

Einstaklega góð stemning í dag

Ólafur segir að þegar Harpa hafi verið nýlega opnuð hafi tónleikagestum þótt það afskaplega hátíðlegt að fara í Eldborg og því hafi stemningin kannski verið svolítið stíf fyrir vikið, „en þegar fólk var búið að koma nokkrum sinnum þá fór að losna um og í dag er einstaklega góð stemning í þessum sal.“

Auk Nýdanskrar hefur Ólafur leikið í Eldborg með hljómsveitinni Todmobile, þar sem hann spilaði meðal annars með John Anderson og Steve Hackett, hljómsveitinni Dúndurfréttum og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þá hefur hann spilað á hinum og þessum tónleikum og sýningum í Eldborgarsalnum.

Hann segist sjálfur halda skrá yfir það sem hann hefur spilað og segir það greinilega vera í blóðinu því nýlega hafi hann fundið skrá yfir það sem afi hans spilaði árið 1945. „Þetta virðist vera mín leið til að fá eitthvert utanumhald um óreiðuna í lífinu,“ segir trymbillinn og hlær.

Ólafur Hólm spilar í hinum glæsilega Eldborgarsal Hörpu í 100. …
Ólafur Hólm spilar í hinum glæsilega Eldborgarsal Hörpu í 100. sinn á laugardag. Uppselt er á árlega stórtónleika hljómsveitarinnar Nýdönsk en enn eru lausir miðar á aukatónleika fyrr um daginn. Ljósmynd/Aðsend

Ný plata á leiðinni

Það er mikið að gerast hjá Ólafi hólm og félögum í Nýdönsk um þessar mundir en ný plata er væntanleg frá hljómsveitinni. Platan var tekin upp í Bretlandi og í þetta skiptið í hljóðveri Real World Studios í bæjunum Bath og Box nærri Lundúnum.

Um upptökur sá hin 26 ára gamla Katie May en Ólafur segir að með því hafi hljómsveitin bæði viljað nýja og ferskari vinda sem og að fá kvenmann inn í vinnuna, „okkur fannst bara mjög sniðugt að kynjajafna eins og hægt er,“ segir hann glettinn, „og líka að fá unga manneskju með okkur og það var að virka alveg einstaklega vel.“

Með Nýdanskri frá upphafi

Ólafur hefur trommað með Nýdanskri frá upphafi eða síðan 1987. Aðspurður segir hann merkilega gott samkomulag vera innan hljómsveitarinnar. „Við erum fínir vinir allir og núningurinn minnkar alltaf með hverju árinu. Við höfum líka passað að vera ekki að spila of mikið og fyrir vikið ekki verið of mikið ofan í hver öðrum.“ Segir hann engin stórmál hafa komið upp. „Menn byrja meira að púrra hver aðra og þá hefur verið gott aðeins að bakka,“ segir Ólafur.

Uppselt er á tónleikana sem verða kl. 21 annað kvöld en enn eru lausir miðar á aukatónleikana sem hefjast kl. 17 sama dag. Ólafur Hólm lofar miklu stuði og hvetur að sjálfsögðu alla til að næla sér í miða á tix.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert