Svanhildur Hólm fundaði með Biden í Hvíta húsinu

Joe Biden og Svanhildur Hólm Valsdóttir á skrifstofu forsetans í …
Joe Biden og Svanhildur Hólm Valsdóttir á skrifstofu forsetans í Hvíta húsinu í Washington.

Svanhildur Hólm Valsdóttir sendiherra afhenti þann 18. september 2024 Joseph R. Biden Bandaríkjaforseta trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Bandaríkjunum.

Afhendingin fór fram við hátíðlega athöfn á skrifstofu forsetans í Hvíta húsinu þar sem sendiherra bar forsetanum kveðju forseta Íslands og ríkisstjórnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sendiráðinu.

„Í stuttu samtali ræddu þau þétt og langvarandi samstarf Íslands og Bandaríkjanna, en í ár eru 80 ár liðin frá stofnun stjórnmálasambands milli ríkjanna. Forsetinn undirstrikaði leiðtogahlutverk Íslands þegar kemur að endurnýjanlegri orkunýtingu og nýstárlegum loftslagslausnum og mikilvægt framlag Íslands til málefna norðurslóða. Þá lagði hann áherslu á mikilvægi áframhaldandi farsæls samstarfs á sviði öryggis- og varnarmála,“ segir í tilkynningunni.

Svanhildur Hólm Valsdóttir er sautjándi sendiherra Íslands í Bandaríkjunum.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert