Beint: Taktu málin í þínar hendur!

Ráðstefnan fer fram á Hótel Reykjavík Grand.
Ráðstefnan fer fram á Hótel Reykjavík Grand. Ljósmynd/Aðsend

Ráðstefnan Taktu málin í þínar hendur! á vegum Alzheimersamtakanna verður haldin í dag í tilefni af alþjóðlegum Alzheimerdegi, sem haldinn er ár hvert 21. september.

Heilabilun hefur verið lýst sem forgangsverkefni í lýðheilsu af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, að því er segir í tilkynningu Alzheimersamtakanna.

Í forgangi eru rannsóknir á forvörnum gegn heilabilun.

„Lífsstíll þinn í dag hefur áhrif á heilsu þína síðar á ævinni. Þú getur dregið úr líkunum að fá heilabilun síðar á ævinni eða seinkað framgangi heilabilunarsjúkdóms. Það er ekki eftir neinu að bíða,“ segir í tilkynningu.

Fjölbreytt dagskrá

Ráðstefnan fer fram á Hótel Reykjavík Grand í salnum Háteig á milli klukkan 12.30 og 15.30, en einnig er sýnt frá ráðstefnunni í beinu streymi. Allir eru velkomnir, en fundastjóri er Sigríður Pétursdóttir.

Hér má sjá dagskrá ráðstefnunnar:

  • Heilabilun og forvarnir; aldrei of snemmt, aldrei of seint. Alma D. Möller
  • Heilahreysti: Að taka því sem að höndum ber eða spyrna við fótum. María Kristín Jónsdóttir
  • A Positive Approach to Dementia Care - Jákvæð nálgun við umönnun fólks með heilabilun. Teepa Snow
  • Að vera eða vera ekki – virkur! Mikilvægi virkninnar frá upphafi greiningar. Harpa Björgvinsdóttir
  • Heilsan er mikilvæg. Hópurinn Heilsa og hugur í Mosfellsbæ. 
  • Hvað getum við gert? Frásögn fjölskyldu sem gekk í gegnum það erfiða verkefni að missa föður og eiginmann úr Alzheimer.
  • Tónlist og heilabilun. Jóna Þórsdóttir
  • Skokkhópurinn Munum leiðina. Páll Eggert Ólason þjónustu þegi Seiglunnar og Stefanía Eyþórsdóttir aðstoðarverkefnastjóri og íþróttafræðingur Seiglunnar.
  • Lokaorð ráðstefnunnar. Ragnheiður Ríkharðsdóttir formaður Alzheimersamtakanna
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert