Beint: Formenn ræða hnattrænar áskoranir

Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis.
Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis. mbl.is/Hákon

Pallborðsumræður um hnattrænar áskoranir og öryggis- og varnarsamstarf fara fram í Háskólanum í Reykjavík í dag frá klukkan 12 til 13.15. Þátttakendur verða formenn utanríkisnefnda þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna.

Fjallað verður um hnattrænar áskoranir, meðal annars stríðið í Úkraínu, áhrif aðildar Svíþjóðar og Finnlands að Atlantshafsbandalaginu og varnar- og öryggissamstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna, að því er segir í tilkynningu.

Beint streymi:

Viðburðurinn er haldinn á vegum Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og öryggismál, og Háskólans í Reykjavík. Honum verður streymt á netinu og einnig birtur síðar textaður á YouTube og samfélagsmiðlum.

Þátttakendur:

  • Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis;
  • Aron Emilsson, formaður utanríkismálanefndar sænska þingsins;
  • Irma Kalniņa, varaformaður utanríkismálanefndar lettneska þingsins;
  • Ine Eriksen Søreide, formaður utanríkis- og varnarmálanefndar norska þingsins;
  • Kimmo Kiljunen, formaður utanríkismálanefndar finnska þingsins;
  • Marko Mihkelson, formaður utanríkismálanefndar eistneska þingsins;
  • Michael Aastrup Jensen, formaður utanríkismálanefndar danska þingsins;
  • Emanuelis Zingeris, formaður utanríkismálanefndar litháíska þingsins.

Opnunarorð flytur Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs. Stjórn pallborðsumræðu: Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert