Heitar umræður á aðalfundi Pírata í Kópavogi

Ný stjórn Pírata í Kópavogi.
Ný stjórn Pírata í Kópavogi. Ljósmynd/Aðsend

Ný stjórn Pírata í Kópavogi var kjörin á laugardag. Þar var Árni Pétur Árnason sagnfræðingur endurkjörinn formaður stjórnarinnar. Heitar umræður um breytingar á merki félagsins áttu sér stað á fundinum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Pírötum í Kópavogi.

Einnig hlutu Indriði Ingi Stefánsson varaþingmaður, Matthías Hjartarson hátækniverkfræðingur og Elín Kona Eddudóttir skáld endurkjör á aðalfundi félagsins.

Salóme Mist Kristjánsdóttir, öryrki og stjórnarmaður í NPA-miðstöðinni, stígur ný inn í stjórnina í stað Evu Sjafnar Helgadóttur varaþingmanns sem kjörin var í framkvæmdastjórn Pírata fyrr í mánuðinum.

Meirihlutinn hafi ekki mætt þörfum ungs fólks og öryrkja

Haft er eftir Árna Pétri að hann sé spenntur fyrir árinu. Síðasta stjórn hafi undirbúið veturinn vel og séu verkefnin ærin. Segir hann meirihlutann í Kópavogi engan veginn hafa mætt þörfum ungs fólks, öryrkja og annarra sem standa höllum fæti í bænum.

„Hér er nánast ekkert húsnæði byggt, loftslagsáætlun meirihlutans er bitlaus romsa sem ætti frekar heima í tragikómedíu, og þau eru bókstaflega hætt að leggja hjólastíga. Við Píratar höfum unnið gott starf til að veita þeim aðhald í þessum málum en þurfum að sýna íbúum að við erum raunhæfur valkostur til þess að bæta úr stöðunni á næsta kjörtímabili,“ er haft eftir hinum nýkjörna formanni.

Heitar umræður um nýtt merki félagsins

Í tilkynningunni kemur fram að fráfarandi stjórn hafi lagt fram tillögu um nýtt merki félagsins á fundinum.

Merkið er dökkgrænt og lítur út eins og merki Pírata nema í stað þorsksins er kópur.

„Heitar umræður voru um breytingarnar og ekki allir par sáttir. Ekki liggur fyrir hvort merkið sé brot á höfundarrétti Kópavogsbæjar á eigin merki en vildu sumir „píratera“ kópnum í leyfisleysi. Var tillögunni loks vísað til nýrrar stjórnar til frekari úrvinnslu,“ segir í tilkynningunni.

Hér má sjá merkið sem fráfarandi stjórn lagði til að …
Hér má sjá merkið sem fráfarandi stjórn lagði til að félagið myndi taka upp. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert