Lát hjóna í Neskaupstað: Beðið eftir gögnum

Frá Neskaupstað.
Frá Neskaupstað. mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglan á Austurlandi segir ekki tímabært að gefa upp dánarorsök í máli eldri hjóna sem fundust látin á heimili sínu í Neskaupstað í lok ágústmánaðar.

Einn maður er í haldi lögreglunnar sem er grunaður um að hafa orðið hjónum að bana og rennur gæsluvarðhald yfir honum út þann 4. október. Yfirheyrslur yfir manninum eru enn í gangi að sögn Kristjáns Ólafs Guðnasonar, yfirlögregluþjóns á Austurlandi.

„Rannsókn á málinu er enn í fullum gangi og við bíðum eftir rafrænum gögnum og niðurstöðum lífsýnarannsóknar,“ segir Kristján Ólafur í samtali við mbl.is en lögreglan hefur fengið í hendur bráðabirgðaniðurstöður úr krufningu á hjónunum sem voru á áttræðisaldri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert